Um okkur
Um okkur
Við erum hjón á Akureyri sem höfum mikinn áhuga á heilbrigðum lífsstíl.

Við trúum því að lifnaðarhættir nútímans séu helsta ástæða versnandi efnaskiptaheilsu almennings og að flestar lausnir heilbrigðiskerfisins séu ólíklegar til þess að stuðla að raunverulegum bata einstaklinga.
Okkar náttúrulega ástand er heilbrigði. Hér á þessari síðu munum við færa rök fyrir því að við viðhöldum heilsu, og náum oft bata á lífsstílssjúkdómum, með því að tengjast umhverfi okkar og náttúru betur.
Við fjöllum um mikilvægi sólarljóss, jarðtengingar, útiveru og næringarþétts matar úr nærumhverfinu, ásamt því að ræða hætturnar sem fylgja rafsegulmengun og ýmsum eiturefnum.
Við eigum fjóra unga stráka sem við sendum ekki í skóla eða leikskóla. Undir flipanum Heimakennsla fjöllum við um ástæður þess að við kjósum að hafa þá heima og deilum okkar reynslu af heimaskólanum.