Frá toppi til táar
Krukka af Griðungr húðkremi á mosavöxnum steini

Griðungr · Húðkrem · 100% hrein nautatólg

Eitt hráefni. Ekkert annað.

Handgert húðkrem úr innanmör nautgripa sem aldir eru með auðgandi landbúnaði. Engin ilmefni, engin rotvarnarefni, engin fylliefni.

Um kremið

Hvers vegna tólg?

Nautatólg hefur svipaða uppbyggingu og húðfita og hentar því öllum húðgerðum. Kremið má bæði nota á líkama og andlit.

01

Heilnæmt

Tólg er náttúruleg fita sem fellur vel að húðinni og er rík af fituleysanlegum vítamínum. Kremið inniheldur aðeins eitt hráefni, svo þú veist nákvæmlega hvað þú berð á þig.

02

Umhverfisvænt

Nautgripirnir eru aldir með auðgandi landbúnaði sem byggir upp jarðveg og heilbrigð vistkerfi.

Húðin er stærsta líffærið okkar og í gegnum hana frásogast þau efni sem borin eru á hana. Því ættum við aðeins að bera á líkamann hrein og náttúruleg efni sem óhætt er að skili sér út í blóðrásina.

Tvær krukkur af Griðungr húðkremi á steini, önnur liggur á hliðinni með merkinu Krukka af húðkremi á steini með grasi í bakgrunni

Hvað er í tólginni?

Náttúrulega rík af því sem húðin þarf

Eitt hráefni, en ekki einfalt. Hrein nautatólg inniheldur fitusýrur og fituleysanleg vítamín sem hafa lengi verið notuð til að næra húðina.

Sterínsýra

fyrir húðina

Sterínsýra hefur lengi verið notuð í húðvörur enda þekkt fyrir að mýkja og slétta húð, ásamt því að gefa henni raka.

Sterínsýra hefur jákvæð áhrif á hvatbera og er því mikilvægur hluti af góðri efnaskiptaheilsu. Góð efnaskiptaheilsa er lykillinn að heilbrigðum líkama.

Um 20% af nautafitu er sterínsýra.

K2-vítamín

fyrir húðina
  • Leiðbeinir kalki úr mjúkvefjum og inn í bein
  • Hindrar kalksöfnun í húðinni
  • Kemur í veg fyrir ótímabæra öldrun húðarinnar

A-vítamín

fyrir húðina
  • Styður heilbrigða kollagenframleiðslu sem heldur húðinni sléttri og unglegri
  • Verndar húðina gegn oxunarálagi
  • Hjálpar til við myndun nýrra húðfrumna
  • Spornar gegn bólu- og fílapenslamyndun

Umsagnir

Það sem fólk segir

Ég elska kremið, hentar mér mjög vel. Nota það einu sinni á dag og húðin er silkimjúk allan sólarhringinn.

Ég bý á Spáni og það var kalt hjá mér svo það var pínu erfitt að ná kreminu úr krukkunni, núna er eðlilegt hitastig og mjög gott að ná kreminu úr.

Það er smá tólgarlykt af því en truflar mig ekkert.

Viðskiptavinur

Kremið virkar mjög vel á sólbruna og exem sem ég var með er farið.

Mæli 100% með og myndi kaupa þetta krem aftur og aftur.

Viðskiptavinur

Maðurinn minn er með rósroðahúð og þetta er það eina sem ertir hann ekki. Ég elska það líka á mína húð og þetta er alveg 100% eina kremið sem ég myndi bera á strákinn okkar.

Viðskiptavinur
Merki Griðungrs

Innihald

100% hrein nautatólg.

Krukka af húðkremi á steini við læk

Verð og pöntun

Pantaðu krem

Húðkrem6.000 kr.

Stærð
60 g í glerkrukku
Innihald
100% hrein nautatólg
Sending
Hvert á land sem er: 1.500 kr.
Frí sending
Ef pantaðar eru tvær krukkur eða fleiri

Hafðu samband

Heyrðu í okkur

Hefur þú spurningar eða langar þig bara að heyra í okkur? Sendu okkur skilaboð á Instagram eða á gridungr@gridungr.is.

Allt um Griðung og pantanir á eigin vefsíðu.

Fara á gridungr.is →

Fáðu fréttabréfið okkar

Við sendum fréttabréf og upplýsingar um námskeið og annað sem er á döfinni. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

Ekkert sem við skrifum er ætlað sem persónuleg ráðgjöf.