Næsta námskeið hefst 4. janúar 2027
Námskeið · Þrjár vikur
Hámörkum heilsuna í vetur
Þriggja vikna námskeið þar sem farið verður yfir ýmsar leiðir sem tengja okkur betur við umhverfi okkar og náttúru.
- Hefst
- 4. janúar 2027
- Lengd
- Þrjár vikur, til 24. janúar 2027
- Fyrirlestrar
- Einn fyrirlestur í upphafi hverrar viku
- Samfélag
- Lokaður Facebook-hópur
Um námskeiðið
Hvers vegna þetta námskeið?
Í námskeiðinu færum við rök fyrir því að ein helsta ástæða versnandi efnaskiptaheilsu almennings sé aftenging við umhverfið okkar.
Við trúum því að það sé erfitt að framkvæma breytingar á lifnaðarháttum án þess að við skiljum í grunninn hvers vegna þær eru mikilvægar.
Allir fyrirlestrarnir byrja því á því að við útskýrum vandamálin sem hljótast af nútíma lifnaðarháttum. Við endum svo fyrirlestrana á því að stinga upp á praktískum lausnum sem allir geta nýtt til þess að líða betur yfir vetrartímann.
Dagskrá
Þrjár vikur, þrjú þemu
Hver vika byrjar á fyrirlestri um efni vikunnar.
-
Vika 1
4.–10. janúar
Mataræði
Í fyrstu viku fjöllum við um mataræði. Við tölum um hvaða matur hentar best yfir kaldan veturinn og hvers vegna. Við tölum um hvaða áhrif ljós í umhverfinu hefur á getu okkar til þess að vinna úr mismunandi matvælum og hvers vegna við ættum að byggja mataræði okkar upp í kringum mat úr nærumhverfinu, sérstaklega á veturna.
Við tölum um hvaða áhrif ketónar hafa á hitamyndun líkamans, ræðum um efnaskiptasveigjanleika og brúna fitu, ásamt því að tala um heilnæm eldhúsáhöld, potta og fleira í þeim dúr.
-
Vika 2
11.–17. janúar
Ljós
Í annarri vikunni fjöllum við um ljós. Við tölum um hvernig ljósumhverfi okkar hefur breyst og hvaða áhrif það hefur á svefn/vökuhring okkar.
Við fjöllum umtalsvert um skaðleg áhrif LED ljósa, t.a.m. á melatónín seytingu sem og á insúlín, kortisól og á blóðsykur.
Við tölum um hvaða áhrif innrauð og rauð birta hefur á líkamann og hvað við getum gert til þess að lágmarka skaðann frá nútíma ljósumhverfi.
-
Vika 3
18.–24. janúar
Náttúran og umhverfið
Í þriðju vikunni tölum við um ýmsa aðra þætti sem hjálpa okkur að tengjast umhverfinu og náttúrunni betur.
Hér ræðum við um kuldaaðlögun, jarðtengingu, mikilvægi útiveru og margt fleira.
Samfélag
Lokaður hópur fyrir þátttakendur
Þátttakendur námskeiðsins fá aðgang að Facebook hóp þar sem við setjum efni okkar inn. Þar munum við hvetja til umræðna um námskeiðið og munum svara öllum spurningum sem því tengjast.
Umsagnir
Hvað segja þátttakendur?
Frábært og fræðandi námskeið!
Þetta var svolítið akkúrat sparkið í rassinn sem mig vantaði.
Takk kærlega fyrir fyrirlestrana, þið eruð geggjuð og takk fyrir að nenna að kafa í þessu og deila með okkur
Ég er búin að hlusta einu sinni og ætla að hlusta aftur. Ótrúlega fræðandi og áhugavert
Frábær þáttur. Ég ætla að reyna að skipta alfarið yfir í svona mataræði í vetur.
Algengar spurningar
Spurt og svarað
Höfum við aðgang að fyrirlestrunum eftir að námskeiðinu lýkur?
Já, Facebook-hópurinn verður opinn um ókomna tíð.
Hvað kostar námskeiðið?
Námskeiðið kostar 16.000 kr. og greiðist með millifærslu.
Hvernig fer námskeiðið fram?
Námskeiðinu verður skipt upp í þrjár vikur. Hver vika byrjar á fyrirlestri um efni vikunnar.
Get ég spurt spurninga á meðan á námskeiðinu stendur?
Þátttakendur námskeiðsins fá aðgang að Facebook hóp þar sem við setjum efni okkar inn. Þar munum við hvetja til umræðna um námskeiðið og munum svara öllum spurningum sem því tengjast.
Hvernig skrái ég mig?
Skráðu nafn og netfang í skráningarforminu neðst á síðunni og við höfum samband. Einnig er hægt að senda okkur skilaboð á Instagram eða Facebook.